kvak.is

 
 

Úr myndasafni

Starfsreglur


Ágæta kórsystir!

Um leið og við viljum bjóða þig velkomna í kórinn okkar þá eru
hér helstu upplýsingar um starfsemi Kvennakórs Akureyrar.

Nákvæm skráning: Við upphaf starfsársins liggur frami félagatal kórsins. Við biðjum konur að bæta á blaðið umbeðnum upplýsingum þannig að stjórn kórsins hafi allar nauðsynlegar upplýsingar. Ef breytingar verða á högum ykkar, heimilisfangi, síma, tölvupósti o.s.frv. látið þá ritara kórsins vita.

Fréttir og tilkynningar: Raddformenn bera ábyrgð á að koma áríðandi upplýsingum til kvenna í sinni rödd, svo sem ef æfingatími breytist eða annað. Á heimasíðunni www.kvak.is, koma reglulega inn upplýsingar. Einnig munu liggja frammi tilkynningar í sérstakri möppu á æfingum fyrir þær sem ekki hafa aðgang að veraldarvefnum. Á heimasíðunni er einnig hægt að finna upplýsingar um starfandi nefndir, myndir af ýmsum skemmtilegum viðburðum og fleira.

Félagsgjald: Félagsgjaldið er kr. 30.000 á ári sem dreifist á 12 mánuði. Félagsgjaldið fer í að greiða kostnað við starf kórsins, laun stjórnanda og undirleikara eftir því sem við á. Einnig fellur til kostnaður vegna nótnakaupa, ljósritunar og ýmislegs annars. Kórinn heldur einnig út heimasíðu. Að hausti leggur gjaldkeri fram „bankalista” (eyðublöð frá stærstu viðskiptabönkunum, þ.e. Glitni, KB, L.Í. og SPNOR). Þegar konur hafa skrifað nafn sitt og reikningsnúmer á listann er félagsgjald dregið af reikningi viðkomandi mánaðarlega. Kórkonur sem eru í öðrum þjónustubönkum skuli hafa samband við gjaldkera kórsins.

Úrsögn úr kórnum: Ætli konur að segja sig úr kórnum skal það gert skriflega til gjaldkera kórsins. Kona hættir að greiða félagsgjald til kórsins frá þeim mánuði er hún segir sig úr kórnum.

Æfingar: Æfingar eru í Brekkuskóla alla sunnudaga frá kl. 17:00 – 19:00 nema annað sé tekið fram. Í kringum tónleika og fyrir aðrar uppákomur er æfingum fjölgað.
Æfingadagur er haldinn einu sinni á hvorri önn. Þá er æft  allan daginn eða eins lengi og þurfa þykir.
Vinsamlega ábending til kórkvenna að sýna hvorri annrri tillitsemi á æfingu – tölum saman í hléinu! Hlé er gert á öllum æfingum.  Verið duglegar að mæta með vatn á æfingar.

Mætingarskylda: Ætlast er til að kórkonur mæti vel á æfingar. Geti konur ekki mætt á æfingar láti þær sinn raddformann vita.

Siðameistari: Einn siðameistari skal vera í Kvennakór Akureyrar. Hann skal bera ábyrgð á útliti kórsins í samráði við stjórnanda og stjórn. Siðameistari hefur heimild til þess að biðja konur um að laga útlit sitt ef þurfa þykir en skal þó ætíð gagnrýna af sanngirni. Í lok hvers starfsárs skal liggja fyrir hver verður siðameistari næsta starfsár.
Siðameistari skal bera ábyrgð á eftirfarandi verkefnum:
-    Að útlit og uppröðun kórs á tónleikum/uppákomum sé samræmt og smekklegt.
-    Að benda á atriði sem betur mega fara varðandi heildarútlit kórsins.

Raddformenn: Raddformaður ber ábyrgð  á að koma tilkynningum til kvenna í sinni rödd. Ef raddformaður forfallast sér vararaddformaður um að koma tilkynningum áleiðis. Raddformaður sér um mætingalista fyrir sína rödd í samstarfi við ritara kórsins. Þú getur alltaf leitað til þíns raddformanns eða stjórnar ef þig vantar upplýsingar eða aðstoð.

Nótur: Í kórnum er nótnavörður sem ber ábyrgð á öllum nótum. Nótur liggja frammi á æfingum, en ef nótur vantar skal hafa samband við nótnavörð.
Stefna kórsins er að syngja nótnalaust á tónleikum.

Hársprey, hárlakk, ilmvatn: Vinsamlegast notið ekki ilmvatn og hársprey á æfingum og tónleikum. Margar konur eru með ofnæmi og þessi efni eru einnig mörg hver mjög slæm fyrir raddböndin.

Heimanám: Nauðsynlegt er að æfa sig heima, lesa texta vel yfir, nótur og jafnvel hlusta á upptökur frá tónleikum. Hægt er að verða sér út um lítið upptökutæki til að vera með á æfingum. Þá er hægt að taka upp sína rödd og hlusta á heima. Missi konur úr æfingar bera þær sjálfar ábyrgð á að vinna upp tapið. Að hausti er undirspil allra laga sett inn á geisladisk sem allar kórkonur geta fengið.

Skriffæri - blýantar og yfirstrikunarpennar:
Gott er að hafa með sér blýant á æfingar til þess að merkja athugasemdir frá kórstjóra inn í nóturnar þínar. Mörgum finnst einnig gott að merkja þann nótnastreng sem þú ert að syngja með áherslutúss, svona meðan verið er að læra hvaða línu viðkomandi rödd syngur!

Umgengni: Ætlast er til að konur gangi vel um húsakynnin. Við röðum upp stólum fyrir hverja æfingu og göngum frá þeim eftir okkur er æfingu lýkur. Athugið að við göngum ekki um á útiskóm innandyra þannig að gott er að taka með sér inniskó á æfingar.

Tónleikar, viðburðir: Kórinn heldur að jafnaði tvenna tónleika á ári, jóla- og vortónleika. Einnig eru yfirleitt á hverju ári nokkrir aðrir viðburðir sem kynntir eru jafnóðum. Til dæmis hefur kórinn nokkrum sinnum verið beðinn um að syngja á vegum bæjarins eða við höfum tekið að okkur að syngja fyrir jólin o.s.frv. Mælst er til þess að konur taki virkan þátt í þessum viðburðum þar sem þessir þættir eru auglýsing fyrir kórinn og því okkar metnaður að koma sem best fyrir þannig að við verðum kallaðar til frekari starfa.

Búningar: Hátiðarbúningur kórsins er vínrauður skósíður kjóll, sem saumaður var sérstaklega fyrir kórinn. Einnig hefur kórinn klæðst svörtum  alklæðnaði og hvítum klút sem kórinn á. Þegar sungið er á jólatónleikum, klæðast kórkonur svörtu að neðan en rauðu að ofan.

Utanlandsferðir og aðrar ferðir: Stefnt er að því að kórinn fari í tónleikaferðalag erlendis fjórða hvert ár. Eins er að jafnaði farin einhver ferð innanlands til að halda upp á lok hvers starfsárs. Stefnan er einnig sett á að taka þátt í Landsmóti Kvennakóra sem er hvert þriðja ár.

Skemmtanir kórsins: Síðasta æfing fyrir jólafrí endar yfirleitt á „litlu jólum“. Þá komum við með eitthvað lítilræði sem við leggjum saman til að borða og hver kona kemur einnig með einn smá pakka að hámarksverðmæti 500 -1000 krónur. Einnig heldur kórinn árshátiðir og aðrar skemmtanir tengdar tónleikum og vorferðum.  Innan kórsins er sérstök nefnd sem skipuleggur skemmtanir og aðrar uppákomur.

Fjáraflanir: Árlega stendur kórinn fyrir ýmsum viðburðum til fjáröflunar fyrir starfið og má þar nefna árlega útgáfu jólakorta. Árið fyrir utanlandsferðir er sérstök áhersla lögð á fjáraflanir og innan kórsins er starfandi nefnd sem sér um skipulagningu. Ætlast er til að allar kórkonur taki þátt í fjáröflunum kórsins. Hægt er að taka þátt með vinnuframlagi eða með því að greiða ákveðna upphæð sem ákvörðuð er hverju sinni að teknu tilliti til umfangs verkefnisins. Þetta er útskýrt í hverju tilviki fyrir sig.

Kostnaðarþátttaka í ferðum: Kórinn greiðir að einhverju leyti niður ferðir kórfélaga þegar farið er erlendis og eins aðrar ferðir á vegum kórsins. Þessi niðurgreiðsla er nánar útskýrð í hverju tilviki fyrir sig. Þarna spila fjáraflanir stóran þátt og er það hagur okkar allra að taka vel þátt í þeim til að konur þurfi að leggja fram minni upphæð úr eigin vasa.

Aðalfundur Kvennakórs Akureyrar: Aðalfundur er haldinn árlega og er stjórn kórsins kosin á þeim fundi. Kjörtímabil stjórnarkvenna er eitt ár í senn en þó má ekki endurnýja nema tvo stjórnarmeðlimi í einu.

Við vonumst til þess að þú hafi ánægju og líka nokkurt gaman af því að syngja með okkur í Kvennakór Akureyrar. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir hafðu þá endilega samband við okkur. Við hvetjum allar konur til að taka virkan þátt í starfi kórsins hvort heldur sem er í þeim viðburðum sem skipulagðir eru eða þegar við komum saman til að gera okkur glaðan dag. Þannig verður hópurinn samstilltari og starfið metnaðarfyllra. Máltækið segir að „öllu gamni fylgir nokkur alvara“ en við viljum gjarnan hafa það þannig líka að allri alvöru fylgi nokkurt gaman og það tekst okkur með því að standa saman í öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur.

Með bestu söngkveðjum,
Stjórn Kvennakórs Akureyrar

Kvennakór Akureyrar,
Grundargerði 6c, 600 Akureyri
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Veffang: http://www.kvak.is

Innskráning