kvak.is

 
 

Úr myndasafni

Hljóðnar nú haustblær

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Úkraínskt þjóðlag. Texti: Sigríður I. Þorgeirsdóttir

Hljóðnar nú haustblær húsið við rótt.
Dvelur við dyrnar drungaleg nótt.
Fljúga þá fuglar flestir sinn veg,
kvakandi kvíðnir - kvöldljóðin treg.

Svífur burt sumar sólar í lönd,
kveður létt kossi klettótta strönd,
ljósu frá landi leysir sitt band,
byltist þung bára - bláan við sand.

Breiðir svo húmið hljóðlátan væng,
milt eins og móðir mjúkri hjá sæng.
Fjúka um foldu fölnandi blóm,
hlýða á haustsins - helkaldan dóm.






Innskráning