Daníel Þorsteinsson
Daníel Þorsteinsson píanóleikari er fæddur í Neskaupstað og hóf þar sitt tónlistarnám. Hann lauk burtfarar- og píanókennaraprófi frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar 1986 og stundaði framhaldsnám við Sweelinck tónlistarháskólann í Amsterdam, þaðan sem hann lauk prófi árið 1993. Daníel hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi um árabil, komið fram sem einleikari m.a. með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sem og í samleik með einsöngvurum og smærri tónlistarhópum; auk þess sem hann hefur haldið námskeið í píanóleik, bæði hér á landi og á Spáni. Hann er félagi í Caput og hefur haldið tónleika með hópnum víða í Evrópu auk Norður-Ameríku og Asíu. Daníel hefur og samið og útsett tónlist s.s. fyrir leikhús, kóra og einsöngvara og leikið inn á fjölda hljómdiska tónlist af ýmsu tagi. Daníel var tilnefndur bæjarlistamaður á Akureyri árið 2000, býr nú í Eyjafjarðarsveit og gegnir m.a. starfi organista við Laugalandsprestakall í Eyjafirði.

Jaan Alavere
Jaan Alavere fæddist í Eistlandi árið 1969. Hann hóf fimm ára gamall píanónám og þegar hann var sjö ára tók hann einnig að læra á fiðlu. Hann gekk í grunn- og framhaldsskóla í Tallinn sem sérhæfður er í tónlistaruppeldi og leggur grunn að frekara námi í tónlist á háskólastigi. Nítján ára gamall útskrifaðist Jaan sem einleikari á fiðlu en jafnframt sem tónlistarkennari og píanóleikari. Hann fór síðan í tónlistarháskóla og lagði stund á fiðluleik og tónsmíðar.
Árið 1994 réðist Jaan sem fiðluleikari að sinfóníuhljómsveit elsta leikhúss í Eistlandi, en það er í borginni Tartu. Hann varð síðar konsertmeistari þeirrar hljómsveitar.
Þrátt fyrir ungan aldur býr Jaan yfir mikilli reynslu sem tónlistarmaður. Hann hefur tekið þátt í tónlistarkeppnum fyrir heimaland sitt, leikið í fjölda hljómsveita, allt frá dans- og djasshjómsveitum til sinfóníuhljómsveita. Hann leikur m.a. með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og var þar konsertmeistari um tíma.
Haustið 1998 var Jaan ráðinn deildarstjóri tónlistardeildar Stórutjarnarskóla og hefur frá þeim tíma einnig verið söngstjóri og undirleikari Söngfélagsins Sálubótar.
Sumarið 2008 var Jaan undirleikari og fararstjóri í söngför Kvennakórs Akureyrar til Eistlands og tók síðan við stjórn hans í september sama ár.
Arnór Vilbergsson
Arnór Vilbergsson er fæddur í Reykjavík og uppalinn í Keflavík. Hann hóf tónlistarnám sitt í tónlistarskólanum í Keflavík 10 ára gamall á píanó. Upp úr 20 ára aldri hóf hann nám í kirkjuorgelleik sem stendur enn. Þá hefur hann einnig lært töluvert í söng, bæði á vegum Tónskóla þjóðkirkjunnar hjá Guðrúnu Tómasdóttur, og Tónlistarskóla Akureyrar hjá Michael Jóni Clark.
Einnig hefur hann stundað nám í kórstjórn hjá Guðmundi Óla Gunnarssyni. Arnór hefur komið víða við á músíksviðinu, bæði trúarlegu og veraldlegu. Hann er organisti í Hríseyjarprestakalli og Laugalandsprestakalli, þar sem hann stjórnar þeim kirkjukórum sem þar eru. Hann hefur verið tónlistarstjóri í þremur söngleikjauppfærslum hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri, komið að tónlistarmálum hjá Leikfélagi Akureyrar og spilað við fjöldann allann af tækifærum með hinum og þessum söngvurum og hljóðfæraleikurum.
Þórhildur Örvarsdóttir
Þórhildur Örvarsdóttir er fædd og uppalin á Akureyri.
Hún hóf söngnám í Reykjavík við Tónlistarskóla FÍH 1993 og fór þaðan í Tónlistarskólann á Akureyri. Hún lauk prófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2000. Einnig hefur hún sótt ýmis námskeið t.d. hjá Sigríði Ellu Magnúsdóttur, Elly Ameling og Cathrine Sadolin.
Þórhildur hefur komið víða við í tónlist þar á meðal í söngleiknum Evítu, sungið hlutverk Elisu Doolitte í My fair Lady og Saffiar í óperunni Sígaunabaróninn, auk þess að taka þátt í allskonar tónleikum og tækifærissöng.
Hún var fastur félagi í kammerkór Akureyrarkirkju - Hymnodia 2002-2005 og söngvari í þjóðlagahljómsveit-inni Mór. Hún hefur haldið fjölda námskeiða í söng og raddbeitingu bæði fyrir börn og fullorðna.
Þórhildur hélt sumarið 2005 til Danmerkur, með sína fimm manna fjölskyldu, til frekara náms við The Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn.
Þórhildur var stjórnandi Kvennakórs Akureyrar frá 2003 - 2005.
Björn Leifsson
Björn Leifsson er fæddur í Reykjavík árið 1953. Hann er tónlistarkennari að mennt og sérhæfði sig í að kenna á ýmis blásturshljóðfæri. Kennaraprófinu lauk hann frá kennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík 1978 og klarínettukennaraprófi frá Guildhall School of Music and Drama árið 1981. Námskeið sem hann hefur sótt vegna tónlistar hafa borið hann víða: Til Svíþjóðar, Danmerkur, Noregs, Þýskalands, Kanada, Grænlands, Englands og einnig vítt og breitt um Ísland. Áður en hann tók kennaraprófið starfaði hann meðfram menntaskólanámi sínu lítillega við hljóðfærakennslu í Reykjavík, Hafnarfirði og síðar í Vestmannaeyjum, þar sem hann tvítugur að aldri var beðinn að stjórna Lúðrasveit Vestmannaeyja. Þetta var í janúar 1974, ári eftir að eldgosið í Heimaey hófst. Störf hans þar og við tónlistarskólann urðu til þess að hann ákvað að spreyta sig á vettvangi tónlistargyðjunnar.
Björn hefur sem tónlistarmaður komið við á ýmsum stöðum, en eftirfarandi listi er ekki tæmandi: Tónlistar-skóli Vestmannaeyja, Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, Skólalúðrasveit Árbæjar- og Breiðholtshverfa, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Lúðrasveitin Svanur í Reykjavík, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í Saint Albans, Lúðrasveit Royal Academy of Music, og Hill House drengjaskólinn í London, Tónlistarskóli Borgarfjarðar, þar sem hann starfaði í 14 ár, þar af 9 sem skólastjóri, tónmenntakennari við Grunnskólann í Borgarnesi, stjórnandi Lúðrasveitar Borgarness, leiklistardeild UMF Skallagríms, stjórnandi Samkórs Mýramanna og organisti í afleysingum, félagi í danshljómsveitinni Seðlum, og þátttakandi og kennari á Skálholtsnámskeiðum söngmálastjóra þjóðkirkjunnar; 1994 flutti Björn til Akureyrar, þar sem hann starfaði m.a. sem kennari, lúðrasveitarstjórnandi og deildarstjóri við Tónlistar-skólann á Akureyri, hljóðfæraleikari við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Leikfélag Akureyrar, í Lúðrasveit Akureyrar og stjórnandi hennar um skeið, söng með Kór Akureyrar-kirkju og Kammerkór Norðurlands, stjórnaði hljómsveitum á vegum Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð, Karlakór Eyjafjarðar, og HAK-kórnum; frá haustinu 2003 hefur Björn starfað sem organisti við Snartarstaðakirkju, Skinnastaðar- og Garðskirkju og sem kennari og skólastjóri Tónlistarskóla Öxarfjarðarhéraðs, þar sem hann stjórnar og æfir skólahljómsveitir af ýmsu tagi. Samkór Mýramanna gaf út bæði segulband og geisladisk með söng sínum meðan Björn stjórnaði honum. Hann hefur einnig útsett lög og tónverk fyrir kóra, hljómsveitir og lúðrasveitir.
Síðast en ekki síst hefur Björn stjórnað Kór Knattspyrnu-félags Akureyrar, KA-kórnum, sem kom fram í fyrsta sinn á 70 ára afmælishátíð félagsins. Upp úr honum spratt síðan Kvennakór Akureyrar, sem Björn stjórnaði frá stofnun hans og til haustsins 2003.
Vinir Björns hafa gert grín að því við hann, að hann hafi stofnað kórinn til að ná sér í konuefni, og má það til sanns vegar færa.