kvak.is

 
 

Úr myndasafni

Kvennakór Akureyrar



Kvennakór Akureyrar í Hofi 19. nóvember 2011


Kvennakór Akureyrar var stofnaður á vordögum 2001. Í honum starfa nú að jafnaði um 60 konur frá Akureyri og nærsveitum. Frá haustinu 2011 er formaður kórsins Una Þórey Sigurðardóttir og stjórnandi frá því í janúar 2009 er Daníel Þorsteinsson.

Kórinn heldur um það bil þrenna tónleika á ári og tekur auk þess að sér að syngja við hvers kyns tækifæri. Lagavalið er fjölbreytt, yfirleitt frekar á léttari nótunum og við allra hæfi. Æfingar kórsins eru á sunnudögum kl. 17:00 - 19:00 og aukaæfingar eftir þörfum.

Kórinn gaf út sinn fyrsta geisladisk vorið 2008, hann ber nafnið "Sólardans á vori" og er fáanlegur hjá kórfélögum, hjá Ragnhildi í s. 896-2273 og í netfangi kórsins Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Nýjustu fréttir


 

Innskráning